2010-08-25 14:53:15
Bók #6 á árinu búin
Var að klára bók #6 á árinu, Árin sem engin man eftir Sæunni Kjartansdóttur. Mömmu datt í hug að ég hefði áhuga á þessari bók þegar hún sá hana á bókasafninu og tók hana fyrir mig og hún hitti sko beint í mark. Ég mæli sko hiklaust með henni, er rosalega ánægð að hafa lesið hana áður en litla krílið kemur í heiminn. Kenndi mér fullt
Hér eru tvær umsagnir sem bókin hefur fengið, tekið af forlagid.is:
Sæunn talar tæpitungulaust um ábyrgð foreldra í þessari bók. Fyrst í stað virðist hún óvægin í þeirra garð, en um leið sýnir hún umburðarlyndi þess sem veit að ekkert foreldri er fullkomið. Og vilji maður vanda sig í foreldrahlutverkinu er gríðarlegan fróðleik og mannskilning að finna í bók Sæunnar. Ég vildi bara óska að ég hefði lesið hana tíu árum fyrr.
Eva María Jónsdóttir, dagskrárgerðarkona og móðir
Börn eru ekki fjárfesting og tími er ekki peningar. Barn er barn í stuttan tíma og tími með barni geymist þótt það séu árin sem gleymast. Sæunn Kjartansdóttir gerir okkur meðvituð um mikilvægi tímans sem geymist.
Andri Snær Magnason, rithöfundur og faðir
Viltu tjá þig? [Bók #6 á árinu búin] (5 hafa tjáð sig) [2010-08-29 18:55:53]
2010-08-24 16:38:08
Mæðraskoðun #7
Fór í mæðraskoðun í morgun. Átti fyrst að mæta í blóðprufu útaf frávikinu í blóðinu mínu sem þarf að fylgjast með og svo átti ég að fara heim og mæta aftur í skoðun kl 11. Ég vaknaði og fer á salernið og er ekki alveg ánægð að sjá smá blóð
Ég dríf mig upp eftir og bið um að fá að tala við ljósmóðir mína en hún var upptekin þannig ég fékk að tala við hjúkrunarfræðing sem talaði við ljósmóður mína þannig ég fékk að fara til hennar eftir smá bið. Þar er ég skoðuð eins og vanalega í mæðraskoðun og allar tölur flottar og fínar og litli að vaxa samkvæmt kúrfunni. Það kom í ljós blóð í þvaginu þannig ég er send til læknis og fæ hjá honum pensilín og ég er líklegast með þvagfærasýkingu. Ég er nú búin að halda það síðan á laugardagskvöldið að ég væri með einhverja sýkingu útaf verkjunum sem ég var/er með en það sást ekkert í þvaginu upp á spítala á sunnudaginn sem mér finnst afar furðulegt
En allavega þá hefur ekkert meira blóð komið og er það líklegast eftir heimsóknina upp á spítala á sunnudaginn þannig ég þarf ekki að hafa áhyggjur af því. Núna á ég bara að taka því enn rólegra og gera sem minnst. Ég gerði nú lítið í gær þar sem ég var í dekri hjá mömmu og í dag er ég að reyna að gera minna. Þuríður vinkona kom í hádeginu og eldaði hádegismat handa mér og passaði mig það sem eftir var að deginum. Núna ætla ég bara að gera töskuna sem fer með mér upp á deild tilbúna ef litli gaur ætlar eitthvað að fara að sýna sig fyrr
Viltu tjá þig? [Mæðraskoðun #7] (2 hafa tjáð sig) [2010-08-24 21:19:31]
2010-08-21 11:22:07
Sauma saum!
Var að sauma mér tösku, er nú búin að vera lengi að sauma þetta eins og allt annað, hrissti ekki hluti lengur út úr erminni í þessu ástandi mínu
En ég keypti efnið í Ikea og fóðraði hana með appelsínugulu efni, ég er alveg rosalega ánægð með hana og hlakka til að fara að nota hana

Viltu tjá þig? [Sauma saum!] (1 hefur tjáð sig) [2010-08-24 13:06:21]
2010-08-21 10:41:59
Prjóni prjón!
Ég prjónaði peysu á litla kút. Byrjaði á peysunni þegar ég var komin um 8 vikur minnir mig. Ég kláraði hana í þar síðustu viku þannig við skulum ekki ræða hvað ég var lengi að gera hana. Taka það líka í reikningin að ég gat ekki saumað í næstum 4 mánuði vegna vöðvabólgu dauðans![]()
![]()
Mamma hjálpaði mér ekkert smá að prjóna þessa peysu, hefði sko ekki getað það án hennar. En hér er mynd af peysunni

Viltu tjá þig? [Prjóni prjón!] (2 hafa tjáð sig) [2010-08-23 18:04:13]
2010-08-18 18:47:09
33 vikur og 3 dagar
Við Magni fórum í Elliðarárdalinn í gær að taka myndir.



Viltu tjá þig? [33 vikur og 3 dagar] (3 hafa tjáð sig) [2010-08-20 08:20:20]
2010-08-15 08:00:01
Sunnudagur til sælu!
Síðasta vika er búin að vera æðisleg
Ég og mamma erum búnar að vera saman í fríi/veikindaleyfi og við höfðum það mjög gott saman. Mamma er búin að vera að hjálpa mér með peysuna sem ég er að prjóna og ég að kenna henni að sauma bútasaum í flottu saumavélinni hennar. Talandi um saumavélina hennar mömmu þá er hún með marga fítusa og ég var að dunda mér að setja litlar fígúrur á taubleiur sem ég keypti í RL búðinni. Þetta eru t.d. bílar, skip, skjaldbökur og fl. Það fylgdi námskeið með saumavélinni eins og með minni en ég náði ekki að nýta mér það og mamma skellti sér og ég fékk að fara með. Ég lærði ekkert smá mikið á vélina hennar mömmu ásamt því að læra fullt á mína. Við græddum svakalega mikið að fara á þetta námskeið.
Við mæðgurnar kíktum í bæinn og ég fann loksins sokkabuxur nr. 50. Vantaði sokkabuxur bara til að hafa litla krílið í á leiðinni heim, kaupi svo fleiri þegar ég þarf fleiri. Svo auðvitað fórum við í Virku (oftar en einu sinni) og keyptum okkur efni. Þetta var alveg æðisleg afslöppunarvika, takk æðislega fyrir allt elsku besta mamma mín
Í þessari viku verður Magni minn í fríi og það er komin langur to do listi, en auðvitað munum við slappa vel af þar sem ég tomma nú ekki heilan dag án þess að leggja mig
Viltu tjá þig? [Sunnudagur til sælu!] (1 hefur tjáð sig) [2010-08-15 11:36:02]
2010-08-13 11:47:15
Mæðraskoðun #6
Við Magni fórum saman í mæðraskoðun í morgun. Allt leit mjög vel út og áætlað er að drengurinn sé orðin um 8-9 merkur og ef allt heldur áfram á sömu braut þá er áætlað að hann verði um 15 merkur við fæðingu. Drengurinn er einnig búin að snúa sér en er ekki komin niður í grindina. Ég spurði hvort hann gæti snúið sér aftur og ljósmóðirinn sagði að hann væri orðin svo þungur að það mundi líklegast ekki gerast. Svo voru allar tölur bæði hjá mér og drengnum mjög flottar nema ég er komin með smá bjúg sem ekkert þarf að hafa áhyggjur af þar sem allt annað er í lagi. Þarf bara að vera dugleg að halda áfram að drekka og fjárfesta í vatnsmelónum
Viltu tjá þig? [Mæðraskoðun #6] (3 hafa tjáð sig) [2010-08-13 13:21:41]
2010-08-10 07:28:02
Útbrot!
Það var nú ekki skemmtilegt að vakna í gærmorgun
Ég vaknaði við það að mig klægjaði út um allt í líkamanum, stóð upp og fór inn á bað og þá var ég orðin öll út í útbrotum
Vá ég fékk sko nett sjokk, hringdi strax upp á heilsugæslu þar sem mér var sagt að koma strax. Magni kom með mér og við vorum ekki lengi að koma okkur út og bruna upp á heilsugæslu. Það er alltaf brjálað að gera á þessar heilsugæslustöð þannig við þurftum aðeins að bíða í röð og vááá þetta var endalaust að bíða, ég var líka alveg svakalega stressuð því að ég var ekki búin að finna neinar hreyfingar og venjulega er mikið fjör hjá litla kút í maganum. Við þurftum svo að bíða smá en ég var bara að fara enn meira á taugum og bað Magna að keyra þetta aðeins áfram og þá loksins gerðist eitthvað. Ljósmóðir tók á móti okkur og sagði að hún væri nú ekki læknir en sagði að útbrotin litu út eins og ofnæmi. Ákveðið var að hlusta eftir bumbubúanum og það tók óvenju langan tíma að finna hjartsláttinn á krílinu en eftir mikla leit heyrðum við hjartsláttinn sem var mjög sterkur og góður. Við fórum svo að hitta lækni sem sagði að ég væri líklegast með ofnæmi, ekki rauðu hundanna eða hlaupabólu. Ég þurfti þá að hugsa hvað ég hafði verið að gera öðruvísi síðustu daga og eina sem mér datt í hug var að ég var byrjuð að taka c-vítamín freyðitöflur sem ljósmóðir bendi mér á að taka vegna nýrnasteinanna. Svo hafði ég líka fengið mér ferskan ananas á sunnudagskvöldið og ég man áður en ég fór að sofa byrjaði mér að klægja þá smá í fótinn en hélt bara að ég væri að fá bólu eða verið bitinn út á svölum því ég var að grilla þar sama kvöld. Ég fékk þau tilmæli að taka ofnæmistöflu og koma strax ef eitthvað breyttist. Ég tók töflu, fór til mömmu og sofnaði smá hjá henni, þegar ég vaknaði sá ég mun á útbrotunum, þau höfðu minnkað. Svo minnkuðu þau fram eftir degi og alltaf fann ég meiri og meiri hreyfingar hjá litla kút. Núna er ég með smá útbrot en alls ekkert í líkingum við það sem ég var með þannig það lítur út fyrir að ég sé með ofnæmi fyrir annaðhvort þessum c-vítamín töflum eða ferskum ananas. Ég hef bara ákveðið að forðast þessa hluti út meðgönguna því að þetta var ekki skemmtileg lífsreynsla.
Viltu tjá þig? [Útbrot!] (8 hafa tjáð sig) [2010-08-10 22:41:25]
2010-06-03 11:25:47
22v 5d
2010-06-02 08:52:10
heima í dag að drekka 3 lítra
2010-05-29 10:05:32
22 vikur, kosningadagur og Eurovision!!!!
2010-05-28 09:45:23
21v 6d
2010-05-25 08:29:11
21v 3d
2010-05-20 10:09:58
kýs Danmörk í Eurovision
2010-05-18 08:26:38
20v 3d
2010-05-13 10:10:36
19v 5d
2010-04-28 16:08:53
bæng bæng
2010-04-27 15:37:45
Knor í knös!