2010-07-29 19:25:35
Nýrnasteinar #2
Ég er líklegast aftur komin með nýrnasteina. Var að kvarta í gær á blogginu að mér væri eitthvað illt í bumbunni og verkurinn fór ekkert þannig ég hringdi upp á heilsugæslustöð í morgun þar sem ég fékk tíma hjá ljósmóður minni klukkan 9. Þar kom í ljós að ég væri með blóð og hvít blóðkorn í þvaginu sem benti til sýkingar. Ég þurfti svo næst að fara að hitta lækni sem skoðaði mig og hann vildi láta mig fara niður á spítala í frekar skoðanir. Við Magni brunuðum því niður á spítala þar sem læknirinn sagði að ég væri líklegast með nýrnastein í þvagleiðaranum sem er búin að mynda sýkingu sem orsakar hvítu blóðkornin í þvaginu. Ég er semsagt komin á pensilín og þarf að drekka 3 lítar af vökva á dag og vona að þessi steinn fari niður eins og hinn
Viltu tjá þig? [Nýrnasteinar #2] (2 hafa tjáð sig) [2010-07-30 10:13:23]
2010-07-28 18:05:23
Sumarfrí!!
Æðislegt að vera í sumarfríi. Ég held að þetta sé í fyrsta skitpið sem við Magni erum í sumarfríi saman hérna á klakanum og höfum ekkert planað. Síðasta sumarfrí sem við áttum saman var þegar við vorum að gera upp íbúðina og þá var bara unnið hörðum höndum alla daga
Á föstudaginn fórum við Magni ásamt vinum Sigrúnar og Kims upp í bústað til þeirra sem þau voru búin að leigja. Við fengum alveg geggjaðan mat og ég var enn södd þegar ég vaknaði á laugardeginum
Spilið Alias var spilað og vááá það var svo mikið hlegið að ég fékk harðsperrur í magann. Svo var farið í pottinn og eftir pottinn fengum við meiri mat, við vorum svo komin heim um miðja nótt.
Á laugardaginn sváfum við út og þegar við vöknuðum byrjuðum við að taka okkur til fyrir sumarbústaðaferð í bústaðinn hjá Möggu og Simma, þau voru svo góð að lána okkur hann í nokkra daga. Við tókum því bara rólega og lögðum af stað upp úr 3 leytið. Komum við á Selfossi og versluðum og fórum bara snemma í háttinn þar sem við vorum enn þreytt eftir hinn sumarbústaðinn og allann hláturinn
Á sunnudeginum fórum við í sund í Hraunborgum, horfðum á The Big Bang Theory og á meðan saumaði ég og prjónaði. Við tókum líka upp bók öðru hvoru til þess að fá ekki tölvuaugu
Á mánudeginum fórum við á Selfoss. Fórum í nokkrar búðir og þar á meðal í bót.is þar sem ég vissi að handavinnukennari væri að vinna þar og ég var búin að missa lykkju sem ég kunni ekki að ná upp aftur. Handavinnukennarinn var að vísu ekki að vinna en annar starfsmaður hjálpaði mér þannig ég gat haldið prjónaskapnum áfram upp í bústað. Við fengum okkur svo hádegismat á Hróa Hetti og þar fékk ég besta hvítlauksbrauð sem ég hef smakkað. Við kíktum í heimsókn til Bjarkar og Unnars og fengum þá snilldar hugmynd að elda saman um kvöldið og þau komu til okkar upp í bústað í grill. Það var mikið borðað og mikið fjör
Í gær vorum við í algerri aflsöppun, fengum okkur smá göngutúr um svæðið en vorum samt mest allan daginn inni að horfa á The Big Bang Theroy, Lethal Whepon og Police Academy. Ég náði að sauma fullt í 15 ára teppinu ásamt því að prjóna nokkrar umferðir.
Í morgun vaknaði ég frekar snemma og vakti Magna og við tókum til, brunuðum í bæinn, fórum að vísu aðra leið en venjulega og hið venjulega líf hefur tekið við
Það er allt gott að frétta af bumbubúanum. Hann var á fullu upp í bústað að hreyfa sig og eina nóttina vakti hann mig og ég átti bara erfitt með að sofna því að það var svo mikið fjör í bumbunni. Ég er með smá verki núna og hef verið með í allan dag og ákvað því að leggja mig um miðjan daginn og svaf bara alveg í allt of langan tíma
En annars er ég að fara að detta inn í viku 31 á laugardaginn
Viltu tjá þig? [Sumarfrí!!] (2 hafa tjáð sig) [2010-07-29 20:27:13]
2010-07-21 22:08:32
Bæjarferðir
Ég er búin að fara í tvær búðarferðir í sumarfríinu, er búin að vera í fríi síðan á mánudaginn
Við Freyja kíktum í bæinn á mánudaginn og fórum að finna garn í peysuna sem ég ætla að prjóna á Magna, fundum fínt garn í Föndru en keypti bara eina dokku til að prófa hvort ég gæti prjónað úr garninu. Við fórum líka í Virku til að kaupa efni í barnateppi sem litli bumbubúi Freyju fær. Við fundum þetta flotta efni og ég get ekki beðið eftir að byrja á teppinu.
Ég var svo spennt að prjóna og gera prjónafestu að Freyja kom til mín í morgun til að aðstoða mig að telja og sjá hversu mikið garn ég þurfti í peysuna. Frábært að fá handavinnukennara heim í einkakennslu ![]()
Ég, mamma og Erla fórum svo í morgun í bæjarferð og keyptum garnið og á morgun ætla ég að byrja á peysunni
Ég þurfti líka að kaupa prjóna og þar sem Magni keypti KnitPro prjónasett handa mér þegar við áttum afmæli þá varð ég að kaupa prjóna í stíl
Viltu tjá þig? [Bæjarferðir] (Enginn hefur sagt orð)
2010-07-19 07:15:30
Handavinna og föndur
Ég held að flest allir lesendur mínir séu búnir að sjá það út að ég er mikil handavinnu, föndur kelling
Ég var í gær að klippa aðeins út efni í hexagon teppi sem ég er að gera þegar ég fór að hugsa hversu mörg verkefni ég er að vinna í. Ég ákvað að skrifa verkefnin niður til þess að hafa heildarmynd af þeim og verkefnin eru alls 14
Þegar ég las þetta svona af blaði þá ákvað ég að bæta nú engu á mig fyrr en allavega helmingurinn er búin því að nokkur verkefni taka alveg nokkur ár og engin pressa er á þeim. En dæmi um verkefni sem ég er að gera eru: kúruteppi handa Karolínu, Völu vinkonu og mér í vél, skrappa brúðkaupsalbúmið mitt og Magna, tvö barnateppi (hexagon) og 15 ára rúmteppið (hexagon). Svo núna nýlega hafa bæst við flónelkoddarnir, taubleiurnar og prjónaskapurinn. Ég er nú alveg að fara að klára peysu á litla kút, á bara eftir að kaupa tölur og ganga frá endum. Ég og Freyja erum svo að fara í dag að finna efni í barnateppi handa litla bumbubúanum hennar og svo kaupa garn í peysu sem ég lofaði Magna í afmælisgjöf ![]()
Mér finnst þetta alveg rosalega gaman og mér finnst líka gaman að hafa nokkur verkefni í gangi. Ég er svo ótrúlega ánægð að vera byrjuð að geta saumað aftur en ég er alls ekki jafn öflug og ég var en það er allt í góðu því að góðir hlutir gerast hægt
Viltu tjá þig? [Handavinna og föndur] (6 hafa tjáð sig) [2010-07-21 18:41:06]
2010-07-16 10:25:30
Spark!
Litli bumbubúinn þakkaði ömmu sinni í vinnunni í dag fyrir nýja fína rúmið sitt með því að leyfa henni að finna fyrir kröftugu sparki í fyrsta sinn
Viltu tjá þig? [Spark!] (Enginn hefur sagt orð)
2010-07-14 11:50:50
Mæðraskoðun #4
Ég fór í mæðraskoðun #4 í morgun. Ákvað að fara ein þar sem ég er að taka þátt í rannsókn um meðgönguþunglyndi og vildi ekki pína Magna að hanga á meðan ég væri að svara spurningunum. Allar tölur litu mjög vel út og allt er eins og það á að vera. Næsta mæðraskoðun er svo 3. ágúst
Viltu tjá þig? [Mæðraskoðun #4] (1 hefur tjáð sig) [2010-07-14 20:31:14]
2010-07-12 23:15:51
Nýtt útlit
Breytingar í gangi á heimasíðunni. Magni var svo góður að gera það sem ég sagði honum að gera
Vona að lesendur verði ánægðir með nýja útlitið
Viltu tjá þig? [Nýtt útlit] (7 hafa tjáð sig) [2010-07-14 10:29:50]
2010-07-11 17:35:38
Bráðum kemur sumarfrí!!!
Ég get ekki beðið eftir að komast í sumarfrí. Ég er farin að taka upp á því núna að vakna um 5 leytið á morgnanna og geta ekki sofnað aftur fyrr en um 7-8. Þetta er soldið þreytandi þegar ég þarf svo að mæta til vinnu kl. 9 þannig ég er enn spenntari að fara í sumarfrí
Magni fór á ættarmót um helgina. Ég treysti mér ekki með þar sem þetta var heilmikil keyrsla á 2 dögum og mér orðið soldið illt í bakinu og ýmsir kvillar að koma tengdir meðgöngu. Ég læt mér nú ekki leiðast á meðan og heimsótti Sigrúnu og Stefán á laugardeginum og um kvöldið hafði ég kosýkvöld ala Dagrún og horfði á bíómyndir, þætti og saumaði. Í morgun fékk ég svo sms frá Sigrúnu sem spurði mig hvort ég vildi ekki koma með í sund sem ég var nú meira en til í og ég skellti mér með fjölskyldunni. Stefán var alveg í essinu sínu og við hlógum sko mikið af honum. Ég held meiri að segja að ég hafi bara workað tanið
Viltu tjá þig? [Bráðum kemur sumarfrí!!!] (2 hafa tjáð sig) [2010-07-11 22:12:14]
2010-07-12 08:27:47
28 v 2d
2010-07-10 07:45:17
5 vinnudagar eftir!!!
2010-07-08 08:14:49
Styttist í sumarfríííí
2010-07-07 08:25:29
27v 4d
2010-06-29 08:11:16
26v 3d
2010-06-24 07:20:32
100 dagar!
2010-06-22 20:44:12
25v 3d
2010-06-14 20:55:57
24v 2d
2010-06-11 08:35:44
Magni kemur heim eftir 2 daga:)
2010-06-10 20:26:33
23v 5d