Heimasíða Dagrúnar

2010-09-06 11:36:19

Bók #8 á árinu búin

Kláraði Óreiða á striga eftir Kristínu Marju Baldursdóttur í morgun. Hún er framhald af Karítas án titils. Bókin er 541 bls og er þetta lengsta skáldsagan sem ég hef lesið. Ég var ekki nema 10 daga að lesa hana og þetta er bara algert met hjá mér. Þessar bækur eftir Kristínu eru alveg æði, lifði mig þvílíkt inn í þær og fannst gaman hvernig tíðarandinn breyttist í gegnum bókina. Í fyrstu bókinni er byrjað á árinu 1915 og seinni bókin endar árið 1999. Alltaf þegar kom ártal í bókinni þá hugsaði ég til einhvers sem hefur fæðst nálægt því ári, eins og 1951 þá fæddist mamma, 1975 fæddist Sigrún og svo kom árið 1983 og ég fædd árinu á undan.

Næsta bók er svo Týnda táknið eftir Dan Brown. Magni fékk þá bók í skóinn og hann er löngu búin að lesa hana, ég var svo að taka til á náttborðinu hjá honum um daginn og sá hana og bara jááá ég á eftir að lesa þessa. Mér leið eins og ég væri að fá pakka ég var svo ánægð ;)

Mér finnst alveg æðislegt að leggjast upp í rúm á kvöldin og lesa, líka alveg æðislega gott að taka upp bók þegar ég er andvaka á nóttinni eftir elífðar pissuferðir ;)

 

Viltu tjá þig? [Bók #8 á árinu búin] (Enginn hefur sagt orð)


2010-09-04 18:59:31

Bumbuboð

Það var haldið bumbuboð hjá mér í dag. Það gekk rosalega vel og var mega gaman. Fullt af vinum og vandamönnum komu í heimsókn og fengu góðar kræsingar og tóku þátt í bumbuboðsleikjum. Ég, Magni og bumbubúinn fengum fullt af flottum gjöfum og við erum rosalega ánægð með þær allar. Ég þakka kærlega fyrir mig og vona að allir hafi skemmt sér jafn vel og ég. Erla frænka sá um að taka myndir og hægt er að skoða þær undir Nýjar Myndir, Bumbuboð.

 

Viltu tjá þig? [Bumbuboð] (3 hafa tjáð sig) [2010-09-04 23:36:23]


2010-09-04 04:14:17

36 vikur



 

Viltu tjá þig? [36 vikur] (Enginn hefur sagt orð)


2010-09-02 21:33:16

Einn mánuður í settan dag!

Jii ég er ekki að trúa því að það er bara einn mánuður í settan dag ! ! Auðvitað er möguleiki að ég gangi 2 vikur yfir en svo er alltaf möguleiki að ég á fyrir tímann ! !

En við Magni fórum á foreldranámskeið í dag og þar var farið yfir atriði varðandi fæðinguna og aðdraganda hennar. Svo eru tvö skipti eftir af þessu námskeiði og síðasta skiptið heimsækjum við spítalann.

 

Viltu tjá þig? [Einn mánuður í settan dag!] (1 hefur tjáð sig) [2010-09-02 21:39:04]


2010-08-31 14:22:08

Mæðraskoðun #8

Við Magni fórum saman í mæðraskoðun í morgun. Allt lítur vel út og litli að stækka. Ég er með bjúg og það var smá prótein í þvaginu en ég á að fara með þvagprufu í fyrramálið til að láta tékka betur á því en það er örugglega bara tengt nýrnasteinunum. Næsta skoðun er eftir 2 vikur og svo fer ég vikulega þangað til ég á ;) Ég er búin að vera með smá verki í maganum á nóttinni og ræddi það við ljósmóður mína, hún sagði að ég væri líklegast pínu marinn eftir öll spörkin sem litli er duglegur að gera í maganum.

Þuríður var svo góð við mig að hún kom með morgunkaffi handa mér í morgun. Verð að snæða á góðgæti því í allan dag...mmmm. Yndislegt líka að finna bragð og lykt ;) Takk elsku besta vinkona :)

 

Viltu tjá þig? [Mæðraskoðun #8] (1 hefur tjáð sig) [2010-08-31 20:26:17]


2010-08-31 07:43:13

Lasarus!

Ég náði mér í þessa ömurlegu kvefpest ! Vaknaði á laugardagsmorgun með hálsbólgu og kvef, var aðeins hressari samt á sunnudeginum en mánudagsnóttina hélt ég að ég mundi ekki lifa nóttina af mér leið svo illa. Ég bauð Magna annaðhvort barnið eða kvefið, hann tók við hvorugu ;) Ég svaf samt mun betur í nótt, það er ekki eins sárt að hósta en er samt með stíflað nef, hósta og smá hita ! Mamma var svo góð að hún kom í gær með súpu og sódavatn svo ég gæti borðað eitthvað. Er að fara í mæðraskoðun á eftir þannig kannski fer ég að tala við lækni !

En um daginn skrifaði ég niður alla þá handavinnu sem ég er að dunda mér í og voru 14 hlutir á listanum. Núna eru aðeins 10 hlutir eftir...víví. Ég er búin með flónelkoddanna, barnateppið sem bumbubúi Freyju fær, peysuna á litla strump og sauma munstur á bleiur. Hinir hlutirnir sem eftir eru á listanum eru frekar löng verkefni þannig það verður eitthvað í það að ég klári þau ! Ég er samt búin að vera mjög dugleg að vinna í 15 ára teppinu og búin með báðar ermarnar í peysunni sem Magni fær ásamt því að vera byrjuð á búknum :)

 

Viltu tjá þig? [Lasarus!] (1 hefur tjáð sig) [2010-08-31 09:18:29]


2010-08-28 01:38:12

35 vikur



 

Viltu tjá þig? [35 vikur] (3 hafa tjáð sig) [2010-08-29 18:24:56]


2010-08-27 15:05:24

Bók #7 á árinu búin

Bók #7 á árinu var bókin Makalaus eftir Tobbu Marinós. Skemmtileg og fyndin bók. Fannst hún svona í anda Sex And The City og Bridget Jones, samt meira Bridget. Mæli með henni fyrir íslenskar skvísur ;)

 

Viltu tjá þig? [Bók #7 á árinu búin] (1 hefur tjáð sig) [2010-08-27 16:37:10]


2010-08-25 14:53:15

Bók #6 á árinu búin

Var að klára bók #6 á árinu, Árin sem engin man eftir Sæunni Kjartansdóttur. Mömmu datt í hug að ég hefði áhuga á þessari bók þegar hún sá hana á bókasafninu og tók hana fyrir mig og hún hitti sko beint í mark. Ég mæli sko hiklaust með henni, er rosalega ánægð að hafa lesið hana áður en litla krílið kemur í heiminn. Kenndi mér fullt !

Hér eru tvær umsagnir sem bókin hefur fengið, tekið af forlagid.is:

Sæunn talar tæpitungulaust um ábyrgð foreldra í þessari bók. Fyrst í stað virðist hún óvægin í þeirra garð, en um leið sýnir hún umburðarlyndi þess sem veit að ekkert foreldri er fullkomið. Og vilji maður vanda sig í foreldrahlutverkinu er gríðarlegan fróðleik og mannskilning að finna í bók Sæunnar. Ég vildi bara óska að ég hefði lesið hana tíu árum fyrr.
Eva María Jónsdóttir, dagskrárgerðarkona og móðir

Börn eru ekki fjárfesting og tími er ekki peningar. Barn er barn í stuttan tíma og tími með barni geymist þótt það séu árin sem gleymast. Sæunn Kjartansdóttir gerir okkur meðvituð um mikilvægi tímans sem geymist.
Andri Snær Magnason, rithöfundur og faðir

 

Viltu tjá þig? [Bók #6 á árinu búin] (5 hafa tjáð sig) [2010-08-29 18:55:53]


2010-08-24 16:38:08

Mæðraskoðun #7

Fór í mæðraskoðun í morgun. Átti fyrst að mæta í blóðprufu útaf frávikinu í blóðinu mínu sem þarf að fylgjast með og svo átti ég að fara heim og mæta aftur í skoðun kl 11. Ég vaknaði og fer á salernið og er ekki alveg ánægð að sjá smá blóð ! ! Ég dríf mig upp eftir og bið um að fá að tala við ljósmóðir mína en hún var upptekin þannig ég fékk að tala við hjúkrunarfræðing sem talaði við ljósmóður mína þannig ég fékk að fara til hennar eftir smá bið. Þar er ég skoðuð eins og vanalega í mæðraskoðun og allar tölur flottar og fínar og litli að vaxa samkvæmt kúrfunni. Það kom í ljós blóð í þvaginu þannig ég er send til læknis og fæ hjá honum pensilín og ég er líklegast með þvagfærasýkingu. Ég er nú búin að halda það síðan á laugardagskvöldið að ég væri með einhverja sýkingu útaf verkjunum sem ég var/er með en það sást ekkert í þvaginu upp á spítala á sunnudaginn sem mér finnst afar furðulegt ! En allavega þá hefur ekkert meira blóð komið og er það líklegast eftir heimsóknina upp á spítala á sunnudaginn þannig ég þarf ekki að hafa áhyggjur af því. Núna á ég bara að taka því enn rólegra og gera sem minnst. Ég gerði nú lítið í gær þar sem ég var í dekri hjá mömmu og í dag er ég að reyna að gera minna. Þuríður vinkona kom í hádeginu og eldaði hádegismat handa mér og passaði mig það sem eftir var að deginum. Núna ætla ég bara að gera töskuna sem fer með mér upp á deild tilbúna ef litli gaur ætlar eitthvað að fara að sýna sig fyrr !

 

Viltu tjá þig? [Mæðraskoðun #7] (2 hafa tjáð sig) [2010-08-24 21:19:31]


Næsta síða

2010-07-12 08:27:47

28 v 2d

2010-07-10 07:45:17

5 vinnudagar eftir!!!

2010-07-08 08:14:49

Styttist í sumarfríííí

2010-07-07 08:25:29

27v 4d

2010-06-29 08:11:16

26v 3d

2010-06-24 07:20:32

100 dagar!

2010-06-22 20:44:12

25v 3d

2010-06-14 20:55:57

24v 2d

2010-06-11 08:35:44

Magni kemur heim eftir 2 daga:)

2010-06-10 20:26:33

23v 5d