2010-09-09 09:01:16
Úff!!
Úff
Verkir og meiri verkir, þetta var svakaleg nótt
Er búin að vera með massa verki frá því á mánudag og í nótt voru þeir að drepa mig, sem betur fer er ég að fara í mæðraskoðun
Var að setja inn myndir af gjöfunum sem við fengum í bumbuboðinu
Viltu tjá þig? [Úff!!] (2 hafa tjáð sig) [2010-09-09 09:25:28]
2010-09-07 10:47:02
Mæðraskoðun #9
Ég fékk sms í gær að ég ætti tíma upp á heilsugæslustöð í dag og ég bara *hmmm* hjá hverjum á ég tíma
Ég hringdi upp eftir og þá átti ég tíma hjá Úllu ljósmóður. Við Magni fórum því í morgun í okkar níundu mæðraskoðun (höfum samt farið oftar þar sem við erum búin að fara oft upp á spítala). Litli kútur er að dafna vel. Ég er með frekar mikla verki sem talið er vera útaf nýrnasteinunum og þar sem hann er farinn að þrýsta sér meira niður þá er hann kannski að ýta á bólgið svæði sem ýtir undir verkina. Það voru tvær ljósmæður sem athuguðu hvort hann væri komin niður í grindina en svo er ekki, hausinn er enn hangandi fyrir ofan sem er eðlilegt. Ég er komin með meiri bjúg og blóðþrýstingurinn var í hærri kantinum en það getur verið útaf verkjunum og kvefinu mínu en ég fer í auka mælingu á fimmtudag til að athuga þróunina. Sem betur fer er ég ekki með neitt í þvaginu því að þá væri ég líklegast komin með meðgöngueitrun og það er nú ekki á bætandi á ástandið mitt
Ég á að taka því mjög rólega og ætla mér að gera það í dag, er komin til mömmu og ætla að liggja upp í sófa með tærnar upp í loft að drekka vatn
Viltu tjá þig? [Mæðraskoðun #9] (Enginn hefur sagt orð)
2010-09-06 11:36:19
Bók #8 á árinu búin
Kláraði Óreiða á striga eftir Kristínu Marju Baldursdóttur í morgun. Hún er framhald af Karítas án titils. Bókin er 541 bls og er þetta lengsta skáldsagan sem ég hef lesið. Ég var ekki nema 10 daga að lesa hana og þetta er bara algert met hjá mér. Þessar bækur eftir Kristínu eru alveg æði, lifði mig þvílíkt inn í þær og fannst gaman hvernig tíðarandinn breyttist í gegnum bókina. Í fyrstu bókinni er byrjað á árinu 1915 og seinni bókin endar árið 1999. Alltaf þegar kom ártal í bókinni þá hugsaði ég til einhvers sem hefur fæðst nálægt því ári, eins og 1951 þá fæddist mamma, 1975 fæddist Sigrún og svo kom árið 1983 og ég fædd árinu á undan.
Næsta bók er svo Týnda táknið eftir Dan Brown. Magni fékk þá bók í skóinn og hann er löngu búin að lesa hana, ég var svo að taka til á náttborðinu hjá honum um daginn og sá hana og bara jááá ég á eftir að lesa þessa. Mér leið eins og ég væri að fá pakka ég var svo ánægð
Mér finnst alveg æðislegt að leggjast upp í rúm á kvöldin og lesa, líka alveg æðislega gott að taka upp bók þegar ég er andvaka á nóttinni eftir elífðar pissuferðir
Viltu tjá þig? [Bók #8 á árinu búin] (Enginn hefur sagt orð)
2010-09-04 18:59:31
Bumbuboð
Það var haldið bumbuboð hjá mér í dag. Það gekk rosalega vel og var mega gaman. Fullt af vinum og vandamönnum komu í heimsókn og fengu góðar kræsingar og tóku þátt í bumbuboðsleikjum. Ég, Magni og bumbubúinn fengum fullt af flottum gjöfum og við erum rosalega ánægð með þær allar. Ég þakka kærlega fyrir mig og vona að allir hafi skemmt sér jafn vel og ég. Erla frænka sá um að taka myndir og hægt er að skoða þær undir Nýjar Myndir, Bumbuboð.
Viltu tjá þig? [Bumbuboð] (3 hafa tjáð sig) [2010-09-04 23:36:23]
2010-09-02 21:33:16
Einn mánuður í settan dag!
Jii ég er ekki að trúa því að það er bara einn mánuður í settan dag
Auðvitað er möguleiki að ég gangi 2 vikur yfir en svo er alltaf möguleiki að ég á fyrir tímann
En við Magni fórum á foreldranámskeið í dag og þar var farið yfir atriði varðandi fæðinguna og aðdraganda hennar. Svo eru tvö skipti eftir af þessu námskeiði og síðasta skiptið heimsækjum við spítalann.
Viltu tjá þig? [Einn mánuður í settan dag!] (1 hefur tjáð sig) [2010-09-02 21:39:04]
2010-08-31 14:22:08
Mæðraskoðun #8
Við Magni fórum saman í mæðraskoðun í morgun. Allt lítur vel út og litli að stækka. Ég er með bjúg og það var smá prótein í þvaginu en ég á að fara með þvagprufu í fyrramálið til að láta tékka betur á því en það er örugglega bara tengt nýrnasteinunum. Næsta skoðun er eftir 2 vikur og svo fer ég vikulega þangað til ég á
Ég er búin að vera með smá verki í maganum á nóttinni og ræddi það við ljósmóður mína, hún sagði að ég væri líklegast pínu marinn eftir öll spörkin sem litli er duglegur að gera í maganum.
Þuríður var svo góð við mig að hún kom með morgunkaffi handa mér í morgun. Verð að snæða á góðgæti því í allan dag...mmmm. Yndislegt líka að finna bragð og lykt
Takk elsku besta vinkona
Viltu tjá þig? [Mæðraskoðun #8] (1 hefur tjáð sig) [2010-08-31 20:26:17]
2010-08-31 07:43:13
Lasarus!
Ég náði mér í þessa ömurlegu kvefpest
Vaknaði á laugardagsmorgun með hálsbólgu og kvef, var aðeins hressari samt á sunnudeginum en mánudagsnóttina hélt ég að ég mundi ekki lifa nóttina af mér leið svo illa. Ég bauð Magna annaðhvort barnið eða kvefið, hann tók við hvorugu
Ég svaf samt mun betur í nótt, það er ekki eins sárt að hósta en er samt með stíflað nef, hósta og smá hita
Mamma var svo góð að hún kom í gær með súpu og sódavatn svo ég gæti borðað eitthvað. Er að fara í mæðraskoðun á eftir þannig kannski fer ég að tala við lækni
En um daginn skrifaði ég niður alla þá handavinnu sem ég er að dunda mér í og voru 14 hlutir á listanum. Núna eru aðeins 10 hlutir eftir...víví. Ég er búin með flónelkoddanna, barnateppið sem bumbubúi Freyju fær, peysuna á litla strump og sauma munstur á bleiur. Hinir hlutirnir sem eftir eru á listanum eru frekar löng verkefni þannig það verður eitthvað í það að ég klári þau
Ég er samt búin að vera mjög dugleg að vinna í 15 ára teppinu og búin með báðar ermarnar í peysunni sem Magni fær ásamt því að vera byrjuð á búknum
Viltu tjá þig? [Lasarus!] (1 hefur tjáð sig) [2010-08-31 09:18:29]
2010-08-27 15:05:24
Bók #7 á árinu búin
Bók #7 á árinu var bókin Makalaus eftir Tobbu Marinós. Skemmtileg og fyndin bók. Fannst hún svona í anda Sex And The City og Bridget Jones, samt meira Bridget. Mæli með henni fyrir íslenskar skvísur
Viltu tjá þig? [Bók #7 á árinu búin] (1 hefur tjáð sig) [2010-08-27 16:37:10]
2010-07-12 08:27:47
28 v 2d
2010-07-10 07:45:17
5 vinnudagar eftir!!!
2010-07-08 08:14:49
Styttist í sumarfríííí
2010-07-07 08:25:29
27v 4d
2010-06-29 08:11:16
26v 3d
2010-06-24 07:20:32
100 dagar!
2010-06-22 20:44:12
25v 3d
2010-06-14 20:55:57
24v 2d
2010-06-11 08:35:44
Magni kemur heim eftir 2 daga:)
2010-06-10 20:26:33
23v 5d